Fara beint í efnið
Skipulagsstofnun Forsíða
Skipulagsstofnun Forsíða

Skipulagsstofnun

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps vegna landnotkunarbreytinga í Vík

7. janúar 2025

Breyting á aðalskipulagi Mýrdalshrepps vegna íbúðarbyggðar verslunar og þjónustu og svæðis fyrir samfélagsþjónustu í Vík

Skipulagsstofnun staðfesti 7. janúar 2025 breytingu á Aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2021-2033 sem samþykkt var í sveitarstjórn 18. september 2024.

Í breytingunni er gert ráð fyrir lítilsháttar stækkun íbúðarbyggðar (ÍB7) og fjölgun íbúða um 20, skilgreindur er reitur fyrir samfélagsþjónustu (S6) ætlaður fyrir hjúkrunarheimili og þjónustu við aldraða og nýtt verslunar- og þjónustusvæði (VÞ44) allt að 1,2 hektara að stærð með hámarksbyggingarmagn allt að 6000 m2. Verslunar- og þjónustusvæði (VÞ6) minnkar sem nemur breytingunum og fer hámarks byggingarmagn úr 6.600 m2 í 2.000 m2 og fjöldi gistirúma úr 40 í 80.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsstofnun

Hafa samband

Sími 595 4100
skipulag@skipulag.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga: 9 til 16
Föstudaga: 9 til 13

Borg­ar­túni 7b

105 Reykjavík
Kennitala: 590269 - 5149

Samfé­lags­miðlar

Facebook
Instagram