Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Skipulagsstofnun Forsíða
Skipulagsstofnun Forsíða

Skipulagsstofnun

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar vegna Litla-Botnslands 1, verslunar- og þjónustusvæði.

15. janúar 2026

Skipulagsstofnun staðfesti, 15. janúar 2026, breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 26. nóvember 2025.

Í breytingartillögunni felst að marka stefnu um nýtt 13,9 ha verslunar- og þjónustusvæði (VÞ20) að Litla-Botnslandi 1 og minnkar frístundabyggð (F40) sem því nemur. Gert er ráð fyrir uppbyggingu hótels með veitingaþjónustu ásamt gestahúsum með gistingu fyrir allt að 200 gesti, starfsmannahús ætluð til fastrar búsetu, viðburðahús og náttúruböð. Heildar byggingarmagn er allt að 5.000 m2 og byggingar að jafnaði á einni hæð. Jafnframt er sérákvæðum fyrir hverfisvernd (HV6 Botn) breytt þannig að heimilt er að byggja þar verslunar- og þjónustusvæði.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsstofnun

Hafa samband

Sími 595 4100
skipulag@skipulag.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga kl. 9-15.
Föstudaga kl. 9-13.

Borg­artún 21

105 Reykjavík
Kennitala: 590269 - 5149

Samfé­lags­miðlar

Facebook
Instagram