Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Skipulagsstofnun Forsíða
Skipulagsstofnun Forsíða

Skipulagsstofnun

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hrunamannahrepps vegna Vesturbrúnar, íbúðarbyggðar ÍB3 á Flúðum

20. október 2025

Skipulagsstofnun staðfesti, 20. október 2025, breytingu á Aðalskipulagi Hrunamannahrepps 2016-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 18. september 2025.

Í breytingunni felst að íbúðarbyggð ÍB3 skiptist í tvennt, annars vegar hefðbundna íbúðarbyggð á lóðum 3-23, þar sem gert er ráð fyrir húsum á 1 hæð og nýtingarhlutfalli 0,4, og hins vegar 38 þjónustuíbúðum á 1-2 hæðum og félagsþjónustu fyrir aldraða á lóðum 2-20, þar sem heimild er fyrir bílakjallara. Nýtingarhlutfall lóða nr. 2-20 er 0,44 ofanjarðar en allt að 0,58 með bílakjallara. Stærð svæðis helst óbreytt, 2,6 ha.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsstofnun

Hafa samband

Sími 595 4100
skipulag@skipulag.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga kl. 9-15.
Föstudaga kl. 9-13.

Borg­ar­túni 7b

105 Reykjavík
Kennitala: 590269 - 5149

Samfé­lags­miðlar

Facebook
Instagram