Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hrunamannahrepps vegna efnistökusvæðis E28 í landi Kópsvatns 2
5. júní 2025

Skipulagsstofnun staðfesti, 4. júní 2025, breytingu á Aðalskipulagi Hrunamannahrepps 2016-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 10. apríl 2025.
Í breytingunni felst stækkun efnistökusvæðis E28 í landi Kópsvatns 2 úr 1,5 ha í um 24 ha og heimilt verður að vinna allt að 300.000 m3 af efni. Landbúnaðarsvæði minnkar sem þessu nemur.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.