Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna miðsvæðis M7, Fornubúðar 5
26. febrúar 2025


Skipulagsstofnun staðfesti, 25. febrúar 2025, breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 sem samþykkt var í bæjarstjórn 30. janúar 2025.
Í breytingunni felst heimildir fyrir 55 íbúðir á miðsvæði M7 og byggingarmagn verður 34.120 m2. Ekki verður heimilt að hafa íbúðir á jarðhæð.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.