Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna Hrauns vesturs
15. janúar 2026

Skipulagsstofnun staðfesti, 15. janúar 2026, breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 sem samþykkt var í bæjarstjórn 15. desember 2025.
Breytingin tekur til rammahluta aðalskipulags og breytinga á landnotkun fyrir blandaða byggð á 34,1 ha svæði Hrauns vestur. Gert er ráð fyrir miðsvæði (M4) fyrir um 2.500-3000 íbúðir, um 272.325 m2 gistingu/hóteli og 110.175 m2 atvinnuhúsnæði. Íbúðasvæði (ÍB2), Íbúðasvæði (ÍB14), verslun og þjónusta (VÞ2), athafnasvæði (AT1) og samfélagsþjónusta (S10) falla út til samræmis.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.
