Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps vegna landbúnaðarsvæðis í landi Króks
12. janúar 2026

Skipulagsstofnun staðfesti, 12. janúar 2026, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032, sem samþykkt var í sveitarstjórn 3. september 2025.
Í breytingunni felst leiðrétting á landnotkun á bæjartorfu að Króki og næsta nágrenni hennar en hún er skilgreind sem óbyggt svæði ÓB1 í gildandi aðalskipulagi en var landbúnaðarsvæði í eldra aðalskipulagi. Með leiðréttingunni stækkar landbúnaðarsvæði L2 um rúmlega 15 ha.
Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.
