Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi fyrrum Sveitarfélagsins Skagafjarðar vegna athafnasvæðis í landi Stóru-Brekku
13. október 2025

Skipulagsstofnun staðfesti 9. október 2025 breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 sem samþykkt var í sveitarstjórn 12. febrúar 2025.
Í breytingunni felst að skilgreint er 3 ha athafnasvæði AT2 á Stóru-Brekku en landbúnaðarsvæði L2 minnkar sem því nemur. Fyrir er á svæðinu stuðningsþjónusta við ferðaþjónustustarfsemi sem er þegar nýtt undir mannvirki, s.s. geymslur og verkstæði.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda
