Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi fyrrum Skagabyggðar vegna færslu Skagavegar
17. desember 2025

Skipulagsstofnun staðfesti, 17. desember 2025, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Skagabyggðar 2010-2030, sem samþykkt var í sveitarstjórn 14. október 2025.
Í breytingunni felst breytt lega Skagavegar á um 1 km kafla rétt norðan félagsheimilisins Skagabúðar. Auk þess er eldri tenging afleggjara að Hróarstöðum lögð af og ný tekin upp við bæinn Hof.
Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.
