Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi fyrrum Húnavatnshrepps vegna nýs efnistökusvæðis við Hnjúk í Vatnsdal
17. desember 2025

Skipulagsstofnun staðfesti, 17. desember 2025, breytingu á Aðalskipulagi Húnavatnshrepps 2012-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 11. nóvember 2025.
Í breytingunni felst nýtt efnistökusvæði E69 í landi Hnjúks í Vatnsdal fyrir vegagerð. Áætluð efnistaka er um 20.000 m3 á næstu tíu árum á um 1,25 ha svæði.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.
