Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Flóahrepps vegna íbúðarbyggðar í landi Vestur-Meðalholts
30. október 2024
Skipulagsstofnun staðfesti 29. október 2024, breytingu á Aðalskipulagi Flóahrepps 2017 - 2029 sem samþykkt var í sveitarstjórn 8. júlí 2024.
Í breytingunni felst skilgreining á nýrri 24,6 ha íbúðarbyggð ÍB18 og landbúnaðarsvæði minnkar sem því nemur. Gert er ráð fyrir 17 íbúðarlóðum, hver 0,8-2,2 ha að stærð með nýtingarhlutfall allt að 0,05.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.