Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Skipulagsstofnun Forsíða
Skipulagsstofnun Forsíða

Skipulagsstofnun

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Fjallabyggðar vegna kirkjugarðs og íbúðarbyggðar við Brimnes.

25. september 2025

Skipulagsstofnun staðfesti 24. september 2025 breytingu á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2020-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 15. maí 2025.

Í breytingunni felst að óbyggt svæði (303 ÓB) er fellt út og á svæðinu er annarsvegar skilgreindur kirkjugarður og grafreitur (303 K) og hinsvegar íbúðarbyggð (331 ÍB). Reitir fyrir opin svæði (OP 330 og OP 157) minnka lítillega. Einnig breytist afmörkun þéttbýlismarka til samræmis við afmörkun kirkjugarðs og grafreits.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsstofnun

Hafa samband

Sími 595 4100
skipulag@skipulag.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga kl. 9-15.
Föstudaga kl. 9-13.

Borg­ar­túni 7b

105 Reykjavík
Kennitala: 590269 - 5149

Samfé­lags­miðlar

Facebook
Instagram