Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar vegna efnistöku (662-N) í Hálsá
6. maí 2025

Skipulagsstofnun staðfesti 5. maí 2025 breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 sem samþykkt var í sveitarstjórn 18. febrúar 2025.
Í breytingunni felst afmörkun á efnistökusvæði í Hálsá allt að 49.000m3 á 2,4 ha. svæði.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.