Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Árborgar vegna breyttra skipulagsákvæða fyrir miðsvæði M5 og M6
30. janúar 2026

Skipulagsstofnun staðfesti, 29. janúar 2026, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Árborgar 2020-2036, sem samþykkt var í bæjarstjórn 3. desember 2025.
Í breytingunni felst nánari skilgreining á skilyrðum fyrir rekstri verslunar- og þjónustustarfsemi á miðsvæðum M5 og M6.
Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.
