Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Akraness vegna skipulagsákvæða fyrir verslunar- og þjónustusvæði í Flatahverfi
19. desember 2025

Skipulagsstofnun staðfesti, 19. desember 2025, breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2021-2033 sem samþykkt var í bæjarstjórn 23. september 2025.
Í breytingunni felst að í sértæk ákvæði fyrir VÞ-212 er bætt við heimild fyrir verkstæði og bílaþvottastöð, á Innesvegi 1 í Flatahverfi.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.
