Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Skipulagsstofnun Forsíða
Skipulagsstofnun Forsíða

Skipulagsstofnun

Skönnun og varðveisla skipulagsuppdrátta

6. maí 2025

Elstu skipulagsuppdrættirnir gerðir aðgengilegir og varðveisla þeirra tryggð

Nú í upphafi árs gerðu Þjóðskalasafnið og Skipulagsstofnun með sér samkomulag um afhendingu á hluta af skjalasafni Skipulagsstofnunar. Þar er meðal annars að finna frumrit af upphaflegum uppdráttum skipulagsnefndar ríkisins af helstu byggðarlögum á landinu. Verkefnið snýr að forvörslu, frágangi, skráningu og afhendingu elstu skipulagsuppdrátta í safni stofnunarinnar til Þjóðskjalasafns, til varanlegrar varðveislu.

Þjóðskalasafnið hefur nú tekið á móti tólf uppdráttum frá árunum 1927-1943 ásamt fleiri uppdráttum sem stofnunin átti í skjalasafni sínu. Safnið er hluti af okkar sameiginlega menningararfi og er einstakt fyrir margra hluta sakir. Þar má finna ýmsar gersemar sem gefa innsýn inn í íslenska skipulagssögu og hugmyndir um byggðaþróun og bæjarmyndun í upphafi 20. aldar. Það er því mikill fengur í viðeigandi varðveislu uppdráttanna og bættu aðgengi að þeim, til eflingar rannsókna og aukinnar almennrar þekkingar á sögu byggðaþróunar og skipulagssögu.

Vinnu Þjóðskjalasafns við frágang og skráningu verður skipt á tvö ár, 2025-2026. Afurð skráningarinnar er skjalaskrá sem birt verður á vef Þjóðskjalasafnsins, þar sem uppdrættirnir verða aðgengilegir í stafrænu afriti ásamt helstu upplýsingum um hvern og einn.

Uppdrættirnir verða jafnframt gerðir aðgengilegir á vef Skipulagsstofnunar ásamt upplýsingum um framvindu verkefnisins og næstu skref en í skjalasafni stofnunarinnar er að finna ýmis önnur gögn sem einnig er fyrirhugað að gera aðgengilegri.

Skipulagsstofnun

Hafa samband

Sími 595 4100
skipulag@skipulag.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga kl. 9-15.
Föstudaga kl. 9-13.

Borg­ar­túni 7b

105 Reykjavík
Kennitala: 590269 - 5149

Samfé­lags­miðlar

Facebook
Instagram