Skipulagsstofnun staðfesti 8. desember 2025, breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2021-2033 sem samþykkt var í bæjarstjórn 20. nóvember 2025.
8. desember 2025

Í breytingunni felst lítilleg stækkun og leiðrétting á mörkum iðnaðarsvæðis I-314, syðst upp að Höfðaselsholti. Þá er iðnaðarsvæði I-316 sameinað við I-315 og skógræktar- og landgræðslusvæði SL-317 fellt út. Engin breyting verður á ákvæðum aðalskipulags fyrir svæðin.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.
