Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Skipulagsstofnun Forsíða
Skipulagsstofnun Forsíða

Skipulagsstofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

Staðfesting á breytingu á rammahluta aðalskipulags í Vífilsstaðalandi vegna íbúðarbyggðar í Hnoðraholti

9. nóvember 2023

Skipulagsstofnun staðfesti, 9. nóvember 2023, breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 19. október 2023.

Breytingin tekur til rammahluta aðalskipulags í Vífilsstaðalandi og felst í að íbúðum í Hnoðraholti innan íbúðarbyggðar 4.11 ÍB er fjölgað úr 200 í 236 og hámarkshæð verður fimm hæðir í stað fjögurra hæða. Innan íbúðarbyggðar 4.12 ÍB er íbúðum fjölgað úr allt að 170 í allt að 280 og hámarkshæð verður fjórar hæðir í stað þriggja hæða.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsstofnun

Hafa samband

Sími 595 4100
skipulag@skipulag.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga kl. 9-15.
Föstudaga kl. 9-13.

Borg­ar­túni 7b

105 Reykjavík
Kennitala: 590269 - 5149

Samfé­lags­miðlar

Facebook
Instagram