Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Skipulagsstofnun Forsíða
Skipulagsstofnun Forsíða

Skipulagsstofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna þjónustumiðstöðvar við Selhöfða

6. júlí 2023

Skipulagsstofnun staðfesti 6. júlí 2023 breytingu á Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029 sem samþykkt var í sveitarstjórn 7. júní 2023.

Í breytingunni felst að skilgreint er um 27 ha verslunar- og þjónustusvæði VÞ26 við Selhöfða vegna áforma um uppbyggingu þjónustumiðstöðvar. Skógræktar- og landgræðslusvæði SL17 minnkar samsvarandi. Felld er út aðkoma að Selfit og verður hún sameiginleg með aðkomu að þjónustumiðstöð. Áformað er að leggja veg frá þjónustumiðstöð að hóteli í Reykholti.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsstofnun

Hafa samband

Sími 595 4100
skipulag@skipulag.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga kl. 9-15.
Föstudaga kl. 9-13.

Borg­ar­túni 7b

105 Reykjavík
Kennitala: 590269 - 5149

Samfé­lags­miðlar

Facebook
Instagram