Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Skipulagsstofnun Forsíða
Skipulagsstofnun Forsíða

Skipulagsstofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna íbúðarbyggðar ÍB33 á Heiðarbrún

18. október 2023

Skipulagsstofnun staðfesti 18. október 2023 breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 12. júlí 2023.

Í breytingunni felst að lóðin Heiðarbrún, innan íbúðarbyggðar ÍB33 í landi Heiðarbrúnar, verður skilgreind sem landbúnaðarsvæði og íbúðarbyggðin minnkar um 1,6 ha vegna þessa. Heimilt verður að skilgreina allt að 20 lóðir innan ÍB33 í stað 16 áður.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsstofnun

Hafa samband

Sími 595 4100
skipulag@skipulag.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga kl. 9-15.
Föstudaga kl. 9-13.

Borg­ar­túni 7b

105 Reykjavík
Kennitala: 590269 - 5149

Samfé­lags­miðlar

Facebook
Instagram