Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Skipulagsstofnun Forsíða
Skipulagsstofnun Forsíða

Skipulagsstofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna Hamraneslínu 1 og 2

13. desember 2023

Skipulagsstofnun staðfesti, 13. desember 2023, breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 sem samþykkt var í bæjarstjórn 8. nóvember 2023.

Í breytingunni felst að Hamraneslínur 1 og 2 verða lagðar í jörð, frá strengendavirki milli Ásvallabrautar og Kaldárselsvegar að tengivirki í Hamranesi, og möstur tekin niður.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsstofnun

Hafa samband

Sími 595 4100
skipulag@skipulag.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga kl. 9-15.
Föstudaga kl. 9-13.

Borg­ar­túni 7b

105 Reykjavík
Kennitala: 590269 - 5149

Samfé­lags­miðlar

Facebook
Instagram