Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Skipulagsstofnun Forsíða
Skipulagsstofnun Forsíða

Skipulagsstofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps vegna frístundabyggðar F76, Bjarnastöðum

5. september 2023

Skipulagsstofnun staðfesti 5. september 2023 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 5. apríl 2023.

Í breytingunni felst að afmörkun og staðsetning frístundabyggðar F76 í landi Bjarnastaða er færð til fyrra horfs eins og hún var sýnd í eldra Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2008-2020. Svæðið stækkar um 13 ha og landbúnaðarsvæði L2 minnkar til samræmis.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsstofnun

Hafa samband

Sími 595 4100
skipulag@skipulag.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga kl. 9-15.
Föstudaga kl. 9-13.

Borg­ar­túni 7b

105 Reykjavík
Kennitala: 590269 - 5149

Samfé­lags­miðlar

Facebook
Instagram