Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Skipulagsstofnun Forsíða
Skipulagsstofnun Forsíða

Skipulagsstofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi fyrrum Sveitarfélagsins Skagafjarðar vegna Sveinstúns ÍB-410 á Sauðárkróki

11. september 2023

Skipulagsstofnun staðfesti 7. september 2023, breytingu á Aðalskipulagi fyrrum Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 sem samþykkt var í byggðarráði 31. júlí 2023.

Í breytingunni felst stækkun á landnotkunarreit fyrir íbúðarbyggð (ÍB-410) úr 7,9 ha í 8 ha til suðurs yfir skógræktarsvæði (SL-402) sem fellur út og opið svæði (OP-401) stækkar úr 4,2 ha í 6,4 ha. Íbúðum er fjölgað úr 50 í 85 íbúðir.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsstofnun

Hafa samband

Sími 595 4100
skipulag@skipulag.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga kl. 9-15.
Föstudaga kl. 9-13.

Borg­ar­túni 7b

105 Reykjavík
Kennitala: 590269 - 5149

Samfé­lags­miðlar

Facebook
Instagram