Fara beint í efnið
Skipulagsstofnun Forsíða
Skipulagsstofnun Forsíða

Skipulagsstofnun

Skipulagsdagurinn verður 17. október

1. október 2024

grafik banner-fb

Skipulagsdagurinn er árleg ráðstefna Skipulagsstofnunar og Sambands íslenskra sveitarfélaga um skipulagsmál. Venju samkvæmt beinum við sjónum að því sem efst er á baugi í skipulagsmálum. Skipulagsdagurinn 2024 fer fram þann 17. október á Hilton Nordica, og stendur frá kl. 9 til 16.

Dagskrá Skipulagsdagsins að þessu sinni er tvískipt, fyrir hádegi verður kastljósinu beint að þróun landnýtingar og búsetu í dreifbýli þar sem við fáum meðal annars erindi um búsetuþróun og framtíðarhorfur í byggðaþróun ásamt því að heyra af stöðu og þróun landnýtingar í dreifbýli. Eftir hádegi verður fjallað um gæði uppbyggingar í þéttbýli og húsnæðismál þar sem við ætlum að velta fyrir okkur skipulagi og uppbyggingu húsnæðis.

Að vanda verður fjölbreyttur hópur frummælenda og sérfræðinga í pallborðsumræðum.

Fagfólk, kjörnir fulltrúar og allt áhugafólki um skipulag er hvatt til að taka daginn frá. Þátttökugjald er 10.000 krónur en innifalin er morgunhressing, hádegisverður og síðdegishressing. Þátttökugjald fyrir nema er 5.000 krónur. Nánari dagskrá verður auglýst þegar nær dregur.

Skipulagsdagurinn verður einnig í beinu streymi.

Dagskrá


09.00 Opnun fundarstjóra

Ávarp Ólafs Árnasonar, forstjóra Skipulagsstofnunar

9:40 Þróun landnýtingar og búsetu í dreifbýli

Vík milli vina en fjörður milli frænda - þróun og framtíðarhorfur strjálbýlis á Íslandi
Þóroddur Bjarnason, Háskóli Íslands

Staða og þróun skipulagsmála í dreifbýli
Guðrún Lára Sveinsdóttir, Skipulagsstofnun

10.30 Morgunhressing


Þori ég, vil ég, get ég? – Sjálfbær byggð í dreifbýli
Salvör Jónsdóttir, Háskóli Íslands

Skipulag í þágu líffræðilegrar fjölbreytni
Snorri Sigurðsson, Náttúrufræðistofnun

11.30 Pallborðsumræður

Við hóp frummælenda bætast Ágúst Sigurðsson, Landi og skógi og Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir, Sveitarfélaginu Skagafirði.

12.00 Hádegisverður

13:00 Gæði uppbyggingar í þéttbýli og húsnæðismál

Ávarp frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Guðmundur Ari Sigurjónsson, stjórnarmaður Sambands íslenskra sveitarfélaga


Attractive Smaller Towns in the Nordics
Anna Granath Hansson, Nordregio

Staðargæði nýrra íbúðahverfa
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, Háskóli Íslands

Gæði í byggðu umhverfi frá samkeppni til uppbyggingar
Jóhanna Helgadóttir, Nordic Office of Architecture

14.30 Síðdegishressing

Híbýlaauður
Anna María Bogadóttir, Urbanistan

Einn ferill húsnæðisuppbyggingar – vinna starfshóps
Pétur Ingi Haraldsson, formaður starfshóps

15.25 Pallborðsumræður


Við hóp frummælenda bætast Björn Axelsson, Reykjavíkurborg, Hermann Jónasson, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Ólafur Árnason, Skipulagsstofnun

16.00 Samantekt og ráðstefnuslit

Léttar veitingar

Skipulagsstofnun

Hafa samband

Sími 595 4100
skipulag@skipulag.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga: 9 til 16
Föstudaga: 9 til 13

Borg­ar­túni 7b

105 Reykjavík
Kennitala: 590269 - 5149

Samfé­lags­miðlar

Facebook
Instagram