Orlofshús og hótel í landi Leifsstaða 2, Eyjafjarðarsveit
25. september 2025
Umhverfismat framkvæmda - Ákvörðun um matsskyldu

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að uppbygging orlofshúsa og hótels í landi Leifsstaða 2, Eyjafjarðarsveit skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum skv. lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana
Greinargerð framkvæmdaraðila, umsagnir, svör við umsögnum og ákvörðun Skipulagsstofnunar eru aðgengileg í gagnagrunni umhverfismats.
Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 25. október 2025.
