Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Skipulagsstofnun Forsíða
Skipulagsstofnun Forsíða

Skipulagsstofnun

Nýjar leiðbeiningar um ferli við gerð svæðisskipulags

13. júní 2025

Nýjar leiðbeiningar komnar út um ferli svæðisskipulags

Út eru komnar leiðbeiningar um ferli svæðisskipulags. Útgáfan er skref í endurskoðun leiðbeininga Skipulagsstofnunar um skipulag og umhverfismat. Áður voru gefnar út leiðbeiningar um ferli aðalskipulags og deiliskipulags.

Leiðbeiningarnar gefa yfirlit yfir ferli við gerð nýs skipulags og breytinga á skipulagi. Þeim er ætlað að nýtast til leiðbeiningar þeim sem koma að skipulagsferlinu með einum eða öðrum hætti.

Leitast er við að gefa heildstætt yfirlit yfir ferlið, allt frá lýsingu til staðfests skipulags og um leið gera grein fyrir hverju skrefi ferlisins og aðkomu þeirra aðila sem að því koma, með vísan í skipulagslög og -reglugerð.

Leiðbeiningarnar má nú finna undir útgefið efni hér á vef stofnunarinnar:

Leiðbeiningar svæðisskipulags

Leiðbeiningar aðalskipulags

Leiðbeiningar deiliskipulags

Skipulagsstofnun

Hafa samband

Sími 595 4100
skipulag@skipulag.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga kl. 9-15.
Föstudaga kl. 9-13.

Borg­ar­túni 7b

105 Reykjavík
Kennitala: 590269 - 5149

Samfé­lags­miðlar

Facebook
Instagram