Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Skipulagsstofnun Forsíða
Skipulagsstofnun Forsíða

Skipulagsstofnun

Norræna ráðherranefndin auglýsir útboð á skýrslu á sviði byggða- og skipulagsmála

13. janúar 2026

Norræna ráðherranefndin um byggða- og skipulagsmál (MR-R) hefur auglýst útboð um að gera samanburðarskýrslu um hlutverk skipulagskerfa Norðurlandanna við að laða að og halda í stór og stefnumótandi framleiðslufyrirtæki

Norræna ráðherranefndin um byggða- og skipulagsmál (MR-R) hefur auglýst útboð um að gera samanburðarskýrslu um hlutverk skipulagskerfa Norðurlandanna við að laða að og halda í stór og stefnumótandi framleiðslufyrirtæki (e. The role of the Nordic planning systems in attracting and retaining large and strategic manufacturing companies).

Verkefnið tengist stefnumótun á sviði byggðamála, skipulags og svæðisbundinnar samkeppnishæfni og er hluti af forgangsverkefnum danskrar og færeyskrar formennsku í Norrænu ráðherranefndinni árið 2026. Markmið skýrslunnar er m.a. að styrkja þekkingargrunn fyrir stefnumótun sem styður við sjálfbæra byggðaþróun og efnahagslega seiglu á Norðurlöndum. Verkefnið byggir á umræðu um samkeppnishæfni Norðurlanda og Evrópu, meðal annars í ljósi nýlegrar skýrslu Mario Draghi um samkeppnishæfni ESB.

Útboðið er auglýst í Mercell-útboðskerfinu og er öllum áhugasömum aðilum á Norðurlöndum og víðar heimilt að taka þátt. Frestur til að skila tilboðum er 6. febrúar 2026 kl. 12.

Frétt af vef Stjórnarráðsins

Skipulagsstofnun

Hafa samband

Sími 595 4100
skipulag@skipulag.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga kl. 9-15.
Föstudaga kl. 9-13.

Borg­artún 21

105 Reykjavík
Kennitala: 590269 - 5149

Samfé­lags­miðlar

Facebook
Instagram