Mjólkursamsalan á Akureyri - núverandi starfsemi og áframhaldandi uppbygging
6. október 2025
Umhverfismat framkvæmda - ákvörðun um matsskyldu
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að núverandi starfsemi og áframhaldandi uppbygging mjólkursamsölunnar á Akureyri, Akureyrarbæ, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.
Greinargerð framkvæmdaraðila, umsagnir, svör við umsögnum og ákvörðun Skipulagsstofnunar eru aðgengileg í gagnagrunni umhverfismats.
Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 6. nóvember 2025.
