Lokanir vegna flutninga 12. og 13. febrúar
11. febrúar 2026

Lokað verður á skrifstofu Skipulagsstofnunar eftir kl. 13 fimmtudaginn 12. febrúar og lokað föstudaginn 13. febrúar, vegna flutninga stofnunarinnar í Borgartún 21, húsnæði Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
Flutningurinn er liður í undirbúning fyrir fyrirhugaða sameiningu stofnana undir nýju nafni Húsnæðis, mannvirkja- og skipulagsstofnunar. Sjá frumvarp.
Við opnum aftur á nýjum stað með óbreyttri starfsemi og verðum áfram með sömu vefslóð, netföng og símanúmer þangað til ný lög um sameiningu verða staðfest.
Opnunartími næstu daga:
Fimmtudagur 12.febrúar: 9-13
Föstudagur 13.febrúar: lokað
Mánudagur 16.febrúar: 9-15
