Leiðbeiningar um efni matsáætlunar
19. febrúar 2026

Skipulagsstofnun hefur gefið út nýjar leiðbeiningar um forsamráð og efni matsáætlunar sem ætlaðar eru þeim sem koma að umhverfismati framkvæmda.
Leiðbeiningar um forsamráð og samþættingu málsmerðferðar
Leiðbeiningar um efni matsáætlunar
Undanfarin misseri hefur staðið yfir heildarendurskoðun á leiðbeiningum stofnunarinnar um umhverfismat og er útgáfan liður í þeirri vinnu. Nýlega hafa einnig komið út gröf sem lýsa málsmeðferð matsskylduákvarðana og umhverfismats framkvæmda.
Endurskoðaðar leiðbeiningar verða ekki gefnar út í einu heildstæðu riti, heldur sem sjálfstæðir kaflar um tiltekin viðfangsefni. Kaflarnir verða gefnir út hver af öðrum, eftir því sem vinnu vindur fram. Það er von stofnunarinnar að með þessari nálgun verði efni leiðbeininganna aðgengilegra og jafnframt auðveldara að uppfæra þær í samræmi við reynslu og þróun í málaflokknum.
