Hringvegur um Hornafjörð - breyting á tengingum, Sveitarfélagið Hornafjörður
29. nóvember 2024
Umhverfismat framkvæmda - ákvörðun um matsskyldu
Framkvæmd háð mati á umhverfisáhrifum
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að breyting á vegtengingum á Hringveginum um Hornafjörð, Sveitarfélaginu Hornafirði, skuli háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér, ásamt greinargerð framkvæmdaraðila, umsögnum umsagnaraðila og svörum framkvæmdaraðila við þeim.
Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 30. desember 2024.