Fara beint í efnið
Skipulagsstofnun Forsíða
Skipulagsstofnun Forsíða

Skipulagsstofnun

Framkomnar athugasemdir við tillögum að strandsvæðisskipulagi Vestfjarða og Austfjarða

26. október 2022

Í upphafi sumars samþykktu svæðisráð að auglýsa tillögur að strandsvæðisskipulagi fyrir Vestfirði og Austfirði. Kynningartími beggja tillagna stóð frá 15. júní - 15. september.

berufjordurfiskeldi dreamstime oleksandr-korzhenko 143015699

Skipulagstillögurnar ásamt fylgigögnum voru birtar á vef Skipulagsstofnunar. Þá voru tillögurnar auglýstar í Bændablaðinu, Fréttablaðinu, Lögbirtingarblaðinu, Morgunblaðinu og á öðrum staðbundnum miðlum á Vestfjörðum og Austfjörðum sem og á vefjum aðliggjandi sveitarfélaga.

Þrír opnir kynningarfundnir voru haldnir á Vestfjörðum og tveir á Austfjörðum um sitthvora tillöguna í júní. Að auki var haldinn sameiginlegur kynningarfundur fyrir báðar tillögur í Reykjavík í ágúst og var fundinum streymt. Hægt er að horfa á upptöku af fundinum hér.

Á kynningartímanum bárust 124 athugasemdir við tillögu að strandsvæðisskipulagi á Vestfjörðum og 97 athugasemdir við tillögu að strandsvæðisskipulagi á Austfjörðum. Hægt er að nálgast framkomnar athugasemdir við skipulagstillögunum hér að neðan.

Svæðisráð beggja svæða vinna að úrvinnslu framkominna athugasemda og er gert ráð fyrir að viðbrögð við þeim liggi fyrir að liðnum 12 vikna úrvinnslutíma.

Athugasemdir við tillögu að strandsvæðisskipulagi á Vestfjörðum

Athugasemdir við tillögu að strandsvæðisskipulagi á Austfjörðum


Skipulagsstofnun

Hafa samband

Sími 595 4100
skipulag@skipulag.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga: 9 til 16
Föstudaga: 9 til 13

Borg­ar­túni 7b

105 Reykjavík
Kennitala: 590269 - 5149

Samfé­lags­miðlar

Facebook
Instagram