Blöndulína 3 - Ný efnistökusvæði í Húnabyggð
9. september 2025
Umhverfismat framkvæmda - Ákvörðun um matsskyldu

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að ný efnistökusvæði vegna lagningar Blöndulínu 3 í Húnabyggð skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
Greinargerð framkvæmdaraðila, umsagnir, svör við umsögnum og ákvörðun Skipulagsstofnunar eru aðgengileg í gagnagrunni umhverfismats.
Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 9. október 2025.
