Alþingi samþykkir sameiningu Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar
19. febrúar 2026

Alþingi hefur samþykkt sameiningu Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Sameinuð stofnun mun bera heitið Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.
Sögu Skipulagsstofnunar má rekja aftur til ársins 1938. Á þeim tíma sem liðinn er hefur stjórnsýsla skipulagsmála ríkisins borið ýmis nöfn, Teiknistofa skipulagsins, Embætti skipulagsstjóra ríkisins, Skipulag ríkisins og nú síðast Skipulagsstofnun. Nú halda fjölbreytt verkefni skipulagsmála áfram undir nýjum hatti HMS.
Sameinuð stofnun er til húsa í Borgartúni 21 og hefur flutningur nú þegar átt sér stað.
