Kynningar- og samráðsfundur um greiningu valkosta og umhverfismat Landsskipulagsstefnu 2015-2026
6. ágúst 2014
Hótel Reykjavík Natura 15. ágúst kl. 14.00
Kynningar- og samráðsfundur verður haldinn 15. ágúst næstkomandi á Hótel Reykjavík Natura. Þar verður kynnt greining faghópa Skipulagsstofnunar á mögulegum valkostum Landsskipulagsstefnu 2015-2026 og leitað eftir ábendingum og sjónarmiðum um þá. Þátttakendur eru beðnir um að tilkynna þátttöku fyrir fundinn á netfangið landsskipulag@skipulagsstofnun.is
Dagskrá
14.00 – 14.50 Yfirlit yfir valkostagreiningu og umhverfismat Landsskipulagsstefnu 2015-2026
14.50 – 15.05 Kaffihlé
15.05 – 16.15 Fyrri kynningar- og umræðulota um greiningu valkosta og umhverfismat
16.15 – 16.25 Kaffihlé
16.25 – 17.40 Seinni kynningar- og umræðulota um greiningu valkosta og umhverfismat
17.40 – 17.50 Fundarlok
Kynningar- og umræðuloturnar verða í fjórum hópum í samræmi við viðfangsefni landsskipulagsstefnu (miðhálendið, dreifbýli, búsetumynstur og haf- og strandsvæði) og eiga þátttakendur á fundinum kost á að kynna sér fleiri en eitt viðfangsefni.
Gögn fyrir fundinn, skýrslan Landsskipulagsstefna 2015-2026: Greining valkosta og umhverfisáhrifa er aðgengileg að neðan. Auk þess verður hægt að nálgast forsenduskýrsluna Skipulagsmál á Íslandi 2014 – lykilmælikvarðar og fyrirliggjandi áætlanir á netinu.