Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Skipulagsstofnun Forsíða
Skipulagsstofnun Forsíða

Skipulagsstofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kynning á skýrslunni Mannvirki á miðhálendinu

1. október 2018

Niðurstöður skýrslunnar Mannvirki á miðhálendinu verða kynntar á morgunfundi miðvikudaginn 10. október kl. 9:00 í húsnæði Skipulagsstofnunar í Borgartúni 7b. Boðið verður upp á morgunkaffi. Stefnt er að því að senda kynninguna út í beinni útsendingu á Facebook síðu stofnunarinnar.

Í skýrslunni er gerð grein fyrir niðurstöðum verkefnis um kortlagningu mannvirkja og þjónustu á miðhálendinu. Tilgangur hennar er að gefa heildstæða yfirsýn yfir núverandi húsakost og þjónustuframboð á miðhálendinu. Slík yfirsýn er nauðsynleg forsenda fyrir frekari stefnumótun um skipulagsmál á miðhálendinu. Í Landsskipulagsstefnu 2015–2026 er Skipulagsstofnun falið að vinna að slíkri skráningu í samvinnu við Þjóðskrá Íslands og sveitarfélög á miðhálendinu. Við gerð skýrslunnar var byggt á fasteignaskrá Þjóðskrár Íslands og gögnum frá sveitarfélögum á miðhálendinu, auk upplýsinga frá fjölmörgum stofnunum, félagasamtökum og einstaklingum og ritaðra heimilda. Nánari upplýsingar um skýrsluna er að finna hér.

Mannvirki á miðhálendinu

Ferðaþjónustumannvirki á miðhálendinu, kortasjá.

Skipulagsstofnun

Hafa samband

Sími 595 4100
skipulag@skipulag.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga kl. 9-15.
Föstudaga kl. 9-13.

Borg­ar­túni 7b

105 Reykjavík
Kennitala: 590269 - 5149

Samfé­lags­miðlar

Facebook
Instagram