Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Skipulagsstofnun Forsíða
Skipulagsstofnun Forsíða

Skipulagsstofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kortlagning mannvirkja og þjónustu á miðhálendinu

22. júlí 2016

Skipulagsstofnun hefur í samstarfi við sveitarfélög og stofnanir hafið vinnu við verkefni um kortlagningu mannvirkja og þjónustu á miðhálendinu. Það er eitt af framfylgdarverkefnum nýsamþykktrar landsskipulagsstefnu 2015-2026 og er hluti af stefnu um skipulag á miðhálendi Íslands.

Kortlagningunni er ætlað að gefa heildstæða yfirsýn yfir núverandi mannvirki, húsakost og framboð þjónustu á hálendinu sem mun nýtast við næstu endurskoðun landsskipulagsstefnu. Afurðir verkefnisins nýtast einnig við vinnslu annarra framfylgdarverkefna landsskipulagsstefnu, svo sem greiningu víðerna, mat á þörf fyrir uppbyggingu ferðaþjónustumannvirkja og nánari stefnumótun um vegakerfi miðhálendisins.

Vinna við verkefnið felst fyrst og fremst í söfnun og skráningu gagna í samvinnu við Þjóðskrá og sveitarfélög á hálendinu, auk fjölmargra annarra stofnana og félagssamtaka sem málið varðar. Niðurstöður verkefnisins verða teknar saman í skýrslu þar sem dregin verður upp mynd af núverandi stöðu fyrir hálendið í heild og einstök sveitarfélög.

Skipulagsstofnun

Hafa samband

Sími 595 4100
skipulag@skipulag.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga kl. 9-15.
Föstudaga kl. 9-13.

Borg­ar­túni 7b

105 Reykjavík
Kennitala: 590269 - 5149

Samfé­lags­miðlar

Facebook
Instagram