Fara beint í efnið
Skatturinn Forsíða
Skatturinn Forsíða

Skatturinn

Auðkenni

Rafræn skilríki og veflyklar eru notaðir til að auðkenna notendur í rafrænum samskiptum við Skattinn og veita aðgang að þjónustuvef Skattsins.

Rafræn skilríki

Rafræn skilríki gera þér kleift að sanna hver þú ert þegar þú notar rafræna þjónustu Skattsins. Þau veita þér öruggan aðgang að þjónustuvefnum og gera þér kleift að sinna ýmsum erindum rafrænt.

Með rafrænum skilríkjum getur þú meðal annars:

  • auðkennt þig á þjónustuvef Skattsins

  • skoðað og sinnt þínum skattamálum

  • sent inn gögn og upplýsingar

  • staðfest upplýsingar og undirritað skjöl rafrænt

Nánari upplýsingar um rafræn skilríki.

Forsvarsmenn fyrirtækja og félaga þurfa að skrá sig inn með veflykli til að fá aðgang að gögnum fyrirtækisins. Þeir hafa aðeins takmarkað aðgang í gegnum eigin rafræn skilríki.

Veflyklar

Veflyklar eru notaðir ef ekki er hægt að nota rafræn skilríki. Skatturinn gefur út nokkrar tegundir veflykla sem veita mismunandi aðgang að þjónustu á þjónustuvef Skattsins.