Fara beint í efnið
Skatturinn Forsíða
Skatturinn Forsíða

Skatturinn

Birting gagna í Stafrænu pósthólfi

Frá og með 1. janúar 2025 birtast bréf frá Skattinum í Stafræna pósthólfinu á Ísland.is. Þetta gildir um einstaklinga og lögaðila sem eru með útgefna kennitölu. Aðgangur að bréfum og tilkynningum frá Skattinum verður eftir sem áður til staðar á þjónustusíðu Skattsins. Breytingin er liður í innleiðingu laga um Stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda. Markmiðið er að bæta þjónustu og auka öryggi við sendingu gagna.

Þetta þýðir að einstaklingar og lögaðilar þurfa að fylgjast með Stafrænu pósthólfi á Ísland.is.

Skatturinn birtir eftirfarandi gögn í stafrænu pósthólfi:

  • Beiðni um gögn

  • Fyrirhugaðar ákvarðanir

  • Ákvarðanir

  • Úrskurðir

  • Endurákvarðanir

  • Vottorð

  • Leyfi

  • Rökstuðningur

  • Beiðni um frest

  • Ítrekun á gagnabeiðni

Bréf til umboðsmanna sem eru send fyrir hönd þeirra skjólstæðinga birtast ekki í Stafrænu pósthólfi umboðsmanna. Sama gildir um fyrirspurnir til lögaðila um upplýsingaskyldu gagnvart þriðja aðila.

Hnipp og tilkynningar um ný bréf

Á Mínum síðum Ísland.is er hægt að skrá netfang og fá hnipp þegar bréf er birt í pósthólfinu.

Á sama stað er hægt að óska eftir að fá öll bréf send á pappírsformi á lögheimili samhliða birtingu í stafrænu pósthólfi. Hægt er að sækja um sömu þjónustu með því að mæta á skrifstofu sýslumanna og framvísa skilríkjum. Réttaráhrif bréfa sem send eru í pósti miðast samt sem áður við tíma birtingar í stafrænu pósthólfi.