Leiðbeiningar vegna skráningar á skattkorti
Til að byrja umsóknina þá smellirðu á „Skrá" þar sem stendur „Skrá persónuafslátt"
Skrá inn með rafrænum skilríkjum
Hægt er að halda áfram með gamlar umsóknir. Til að hefja nýja umsókn er smellt á „Búa til nýja umsókn“
Fylla inn netfang og símanúmer ef vantar annars staðfesta og smella á „Vista og halda áfram“
Haka í viðeigandi reit og smella á „Vista og halda áfram“
Slá inn dagsetningu og hlutfall persónuafsláttar. Smella á „Vista og halda áfram“
Smella á „Senda inn“ til að ljúka umsókn