Sjúkratryggingar og SÁÁ
25. september 2026
Samkomulag um endurskoðun samnings og styrkingu stjórnarhátta

Sjúkratryggingar og SÁÁ hafa náð saman um að endurskoða núgildandi samning aðila með það að markmiði að styrkja stjórnarhætti og skapa skýrari umgjörð um heilbrigðisþjónustu SÁÁ. Aðilar telja breytingarnar mikilvægt skref til að efla traust á starfseminni og skapa traustan grundvöll fyrir áframhaldandi þjónustu við þann stóra hóp fólks sem á henni þarf að halda.
YFIRLÝSING SJÚKRARTYGGINGA OG SÁÁ
Sjúkratryggingar og SÁÁ lýsa yfir sameiginlegum vilja til að endurskoða núgildandi samning sem undirritaður var 19. desember 2025.
Markmiðið með endurskoðuninni er að styrkja ákvæði samnings aðila um stjórnarhætti sem meðal annars tryggi armslengd milli félagasamtakanna og faglegrar stjórnunar heilbrigðisþjónustu.
Á sama tíma verði tryggt að hér eftir sem hingað til verði heilbrigðisþjónustan veitt í nafni SÁÁ. Jafnframt verði áfram unnið á grundvelli sömu hugmyndafræði og stefnu varðandi þjónustu, sbr. gildandi samning.
Umræddar breytingar geta m.a. falist í því að skipa sérstaka 3-5 manna stjórn yfir heilbrigðisþjónustunni sem verði að meirihluta skipuð óháðum aðilum sem hafi það hlutverk að tryggja fagleg gæði og góða stjórnarhætti. Sjúkratryggingar og SÁÁ munu hafa samráð um skipunina. Framkvæmdastjórn SÁÁ mun samkvæmt þessu fyrirkomulagi gegna hlutverki eiganda heilbrigðisþjónustunnar og taka þátt í að móta almennar áherslur hennar í samráði við stjórn.
Þá verða hlutverk lykilstjórnenda og lykilsérfræðinga skýrð og þær kröfur sem gerðar verða til þeirra mótaðar með skýrum hætti.
Það er mat aðila að þessar breytingar geti stuðlað að auknu trausti, bæði meðal starfsmanna og í samfélaginu almennt, um þá mikilvægu heilbrigðisþjónustu sem fram fer hjá SÁÁ. Er það mat Sjúkratrygginga og SÁÁ að horfa þurfi til framtíðar, tryggja góða stjórnarhætti og leita allra leiða til að fyrirbyggja að upp komi ágreiningur um starfsemina.
Jafnframt mun SÁÁ vinna áfram að því að tryggja heilbrigðisþjónustu í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru í samningi samtakanna við Sjúkratryggingar.
