Einfaldari þjónusta og styttri bið fyrir notendur
28. október 2026
Breyting á þjónustu við hjálpartæki

Sjúkratryggingar vinna að breytingum á fyrirkomulagi þjónustu við hjálpartæki með það að markmiði að einfalda ferla, stytta biðtíma og bæta þjónustu við notendur. Með færri milliliðum, aukinni aðkomu heilbrigðisstarfsfólks og skýrari verkaskiptingu verður þjónustan færð nær notendum. Breytingarnar munu ekki hafa í för með sér aukinn kostnað fyrir notendur.
Breytingarnar eru liður í stefnu Sjúkratrygginga um einfaldari, skilvirkari og notendamiðaðri þjónustu. Áhersla er lögð á að fólk þurfi að leita til færri aðila eftir hjálpartækjum og að umsóknir, afhending, viðgerðir og endurnýjun gangi hraðar fyrir sig.
Um leið er verið að skýra og styrkja kjarnahlutverk Sjúkratrygginga sem samninga- og greiðslustofnunar. Stofnunin mun í auknum mæli leggja áherslu á að tryggja réttindi notenda, greiðsluþátttöku, gæði þjónustu og hagkvæma nýtingu sameiginlegra fjármuna, fremur en að annast sjálf beina umsýslu og rekstur hjálpartækja.
Helstu breytingar á hjálpartækjaþjónustu
Auknar heimildir heilbrigðisstarfsfólks til úthlutunar. Um 300 heilbrigðisstarfsmenn hafa nú heimild til að afgreiða umsóknir um tiltekin hjálpartæki án milligöngu starfsmanna Sjúkratrygginga. Fyrirkomulagið hefur reynst vel og fyrirhugað er að útvíkka heimildirnar til fleiri tegunda hjálpartækja. Þannig geta fleiri umsóknir verið afgreiddar beint hjá þeim fagaðilum sem þekkja þarfir notenda samkvæmt reglugerð.
Einfaldari og hraðari afhending hjálpartækja. Fyrirkomulag svokallaðra ytri lagera verður eflt. Það felur í sér að tiltekin hjálpartæki eru afhent beint frá birgjum til heilbrigðisstofnana án þess að fara fyrst í gegnum Sjúkratryggingar. Með einfaldara utanumhaldi og færri milliliðum er stefnt að hraðari afhendingu til notenda.
Skilvirkari afgreiðsla umsókna og aukin sjálfvirkni. Verklag við afgreiðslu umsókna verður einfaldað þannig að minni tíma verði varið í yfirferð einfaldari mála en meiri áhersla lögð á flóknari og kostnaðarsamari umsóknir. Jafnframt verða teknar upp úrtaksskoðanir til að tryggja að úthlutanir samræmist gildandi reglum.
Rafræn umsóknarferli í Gagnagátt Sjúkratrygginga verða einnig endurbætt og sjálfvirkni aukin. Markmiðið er að umsóknir berist betur útfylltar, draga úr handvirkri vinnu og flýta afgreiðslu.
Viðgerðir og endurnýting færast til birgja. Ein stærsta breytingin felst í nýju fyrirkomulagi verkstæðisþjónustu. Sjúkratryggingar hafa ákveðið að hætta eigin verkstæðisrekstri Hjálpartækjamiðstöðvar og semja þess í stað við birgja um að sinna verkefnunum. Birgjar munu þá annast bæði viðgerðir á hjálpartækjum og endurgerð tækja sem notendur hafa skilað. Með því er stefnt að því að fækka milliliðum, einfalda samskipti og stytta boðleiðir þannig að viðgerðir og endurnýjun hjálpartækja gangi hraðar fyrir sig.
Endurnýting hjálpartækja tryggð
Þegar hefur verið gengið frá samningum við fyrirtæki sem munu annast endurnýtingu langstærsts hluta hjálpartækja. Jafnframt er unnið að samkomulagi við fleiri birgja um endurnýtingu. Til framtíðar er stefnt að því að endurnýting verði í auknum mæli hluti af samningum Sjúkratrygginga við birgja, þar sem það á við. Með því er stuðlað að áframhaldandi nýtingu hjálpartækja, hagkvæmari rekstri og ábyrgri nýtingu fjármuna, án þess að slaka á kröfum um öryggi og gæði. Endurnýting hjálpartækja verður því áfram mikilvægur hluti þjónustunnar. Jafnframt verða skilareglur endurskoðaðar, meðal annars með hliðsjón af auknum öryggiskröfum. Gert er ráð fyrir að verkefnin færist til birgja á næstu mánuðum. Á meðan yfirfærslan stendur yfir verður áfram tekið við hjálpartækjum samkvæmt núverandi fyrirkomulagi.
Breytingar á starfsemi Hjálpartækjamiðstöðvar
Breytingar á fyrirkomulagi verkstæðis hafa áhrif á sjö stöðugildi, allt starfsfólk Hjálpartækjamiðstöðvar. Störf við þau verkefni sem færast til birgja verða lögð niður hjá Sjúkratryggingum.
Skýrari ábyrgð og betri þjónusta
Breytingarnar eru í samræmi við stefnu Sjúkratrygginga um að styrkja hlutverk stofnunarinnar sem samninga- og greiðslustofnunar og nýta betur þá þekkingu og þjónustugetu sem er til staðar hjá heilbrigðisstarfsfólki og birgjum.
Þær falla jafnframt að áherslum í skýrslu heilbrigðisráðuneytisins um hjálpartækjamál frá janúar 2026, þar sem meðal annars er lögð áhersla á bætt aðgengi, skýrari ábyrgð, samræmt verklag og hagkvæmari nýtingu fjármuna.
Markmiðið er að notendur fái þau hjálpartæki og þá þjónustu sem þeir þurfa með einfaldari og skjótari hætti – án aukins kostnaðar.
