Sjúkratryggingar og SÁÁ
18. september 2026
Samstaða um að leita lausna

Í dag áttu Sjúkratryggingar og SÁÁ fund um þá stöðu mála sem upp er komin hjá SÁÁ. Fundurinn var uppbyggilegur og jákvæður og var samstaða um að aðilar myndu í sameiningu leita lausna á þeim vanda sem nú er uppi í starfseminni.
Aðilar munu nú þegar hefja vinnu sem miðar að því að efla og bæta stjórnarhætti og skipulag heilbrigðisþjónustunnar. Er það mat aðila að tryggja þurfi stöðugleika og samfellu í þessari mikilvægu, samfélagslegu starfsemi.
