Fara beint í efnið
Sjúkratryggingar Forsíða
Sjúkratryggingar Forsíða

Sjúkratryggingar

Reynslumiðlun opinberra frumkvöðla þann 23. september

17. september 2026

Reynslusögur og lexíur af árangursríkum umbótaverkefnum innan hins opinbera

Þann 23. september verður viðburðurinn Reynslumiðlun opinberra frumkvöðla þar sem verðlaunahafar Nýsköpunarverðlauna hins opinbera 2026 deila reynslusögum sínum af árangursríkum umbótaverkefnum í sínu starfi. Þeim áskorunum sem þurfti að yfirstíga og lærdómum sem græddust fyrir framtíðar umbóta- og nýsköpunarverkefnum hjá hinu opinbera. Þetta er því kjörinn vettvangur fyrir alla sem hafa áhuga á umbótum og nýsköpun hjá opinberum stofnunum.

Viðburðurinn verður miðvikudaginn 23. september klukkan 13:00-15:00 (Hús opnar 12:30) í Katrínartún 6, 1. hæð (gengið inn frá Bríetartúni um aðalinngang Fjársýslunnar) í fundarsalnum Dynjandi

Athugið að sætafjöldi er takmarkaður svo smelltu hér til að skrá þig

Dagskrá:

  • 12:30 Húsið opnar

  • 12:45 Tilkynning frá fundarstjóra

    • Sveinbjörn Ingi Grímsson -

      Sérfræðingur um opinbera nýsköpun á Umbóta- og þróunarsviði Fjársýslunnar

  • 13:00 Neyðin kennir naktri konu að spinna: Frá þræði yfir í vef

    • Þórdís Jóna Sigurðardóttir -

      Forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu

  • 13:20 Þrautseig nýsköpun til langs tíma

    • Sigurður Magnús Garðarsson -

      Forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands

  • 13:40 Hlé og tengslamyndun

  • 14:10 Áfram gakk!

    • Áslaug Hulda Jónsdóttir -

      Framkvæmdastjóri Þróunar hjá Sjúkratryggingum Íslands

  • 14:30 Frá vegferð til veruleika

    • Óskar J. Sandholt -

      Sviðsstjóri Þjónustu- og nýsköpunarsviðs Reykjavíkurborgar

  • 14:50 Spurningar og opnar umræður

    • Að erindum loknum taka flytjendur við spurningum úr sal