Sérstök komugjöld í þjálfun frá 1. september 2026
1. september 2026
Frá og með 1. september 2026 verða innleidd sérstök komugjöld vegna þjónustu á sviði þjálfunar, þar á meðal sjúkraþjálfunar, talþjálfunar og iðjuþjálfunar.

Samkvæmt breytingu á reglugerð nr 1495/2025 frá Heilbrigðisráðuneytinu verða frá og með 1. september 2026 innleidd sérstök komugjöld vegna þjónustu á sviði þjálfunar, þar á meðal sjúkraþjálfunar, talþjálfunar og iðjuþjálfunar. Stjórnarráðið | Breytingar á komugjöldum 1. ágúst
Sérstaka komugjaldið leggst ofan á greiðslu samkvæmt greiðsluþátttökukerfi heilbrigðisþjónustunnar. Gjaldið er utan afsláttarstofns og lækkar því ekki þótt fjöldi komu- eða meðferðartíma aukist.
Sama komugjald gildir fyrir styttri meðferðir, hóptíma, fjarþjálfun og almenna meðferðir. Einstaklingar sem njóta 100% niðurgreiðslu vegna heimasjúkraþjálfunar greiða ekki sérstakt komugjald. Börn greiða ekki sérstakt komugjald. Eftir að 67 ára aldri er náð teljast allir aldraðir einnig þeir sem áður voru öryrkjar. Einstaklingar sem eru á endurhæfingarlífeyri greiða það sama og öryrkjar. Þegar um slysmál sem samþykkt eru að Sjúkratryggingum er að ræða þá greiðir einstaklingur ekki komugjald.
Gjaldskrá
Hópur | Sérstakt komugjald |
Almennt sjúkratryggðir | 1.500 kr. |
Aldraðir | 1.000 kr. |
Öryrkjar | 500 kr. |
Börn yngri en 18 ára | 0 kr. |
Sérstaka komugjaldið birtist sem sérstakur gjaldaliður á reikningi. Í talþjálfun og iðjuþjálfun er hann nr 80 og í sjúkraþjálfun MU00000. Samanlögð greiðsla einstaklings samkvæmt greiðsluþátttökukerfi og sérstakt komugjald getur þó aldrei orðið hærri en fullt gjald samkvæmt gildandi gjaldskrá.
