Fara beint í efnið
Sjúkratryggingar Forsíða
Sjúkratryggingar Forsíða

Sjúkratryggingar

Almannatryggingar á Íslandi 90 ára

27. ágúst 2026

Afmælisráðstefna í Hörpu 30. september

Árið 1936 tóku lög um alþýðutryggingar gildi og í kjölfari þess var Tryggingastofnun ríkisins stofnuð sama ár. Það lagði grunninn undir því öryggisneti sem landsmenn búa við í dag og með tímanum varð Tryggingastofnun ríkisins að Tryggingastofnun, Sjúkratryggingum Íslands og Vinnumálastofnun.

Ráðstefna í Hörpu

Níutíu ára afmælis almannatrygginga verður minnst 30. september næstkomandi með opinni ráðstefnu í Hörpu þar sem fjallað verður um almannatryggingar á Íslandi og farið yfir sögu, þróun og framtíð kerfisins. Þá verður fjallað um samspil almannatrygginga við atvinnulíf, stéttarfélög, lífeyrissjóði og rannsóknir á sviðinu. Það verða erlendir talsmenn og flutt verða erindi meðal annars frá OECD, ISSA alþjóðasamtökum almannatryggingastofnana, félags- og fjölskylduráðuneyti Möltu auk forstjóra almannatryggingastofnana á norðurlöndunum.

Að ráðstefnunni standa, auk Tryggingastofnunar: félags- og húsnæðisráðuneytið, Sjúkratryggingar Íslands og Vinnumálastofnun.

Skráningarhlekkur er hér.

Dagskrá

Kl. 9.00 - Setning

Félags- og húsnæðismálaráðherra flytur ávarp.

Heilbrigðisráðherra flytur ávarp.

Kl. 9.15 - Stjórnsýslan og hagaðilar

Forstjórar Tryggingastofnunar, Sjúkratrygginga Íslands og Vinnumálastofnunar flytja erindi um helstu áskoranir og tækifæri á sínu málefnasviði.

Pallborðsumræður með hagaðilum þar sem rætt verður um samstarf, þjónustu við notendur og framtíðarsýn velferðarkerfisins.

Kl. 10.45 – Kaffihlé

Kl. 11.15 – Aðkoma og samspil atvinnulífs, lífeyrissjóða, stéttarfélaga og fræðasamfélags

Fulltrúar Samtaka atvinnulífsins, Landssamtaka lífeyrissjóða, ASÍ og Háskóla Íslands flytja erindi.

Kl. 12.15 - Hádegisverður

Kl. 13.00 - Staðan í alþjóðlegu samhengi – Reynsla, þekking og framtíð almannatrygginga

OECD: The future of social protection and social policy. ISSA: Social security, navigating change for success. Ministry for social policy and the family, Malta: Development of social insurance in Malta, evolution to present day, and perspectives on the future of social protection and social policy.

Kl. 14.30 – Kaffihlé

Kl. 14.40 – Pallborðsumræður með fulltrúum norrænna almannatryggingastofnana

Ráðstefnulok og samantekt.

Kl 16 – Léttar veitingar og samverustund

Athugið að eftir kl. 13.00 fer dagskráin fram á ensku.

Skráning á vefnum almannatryggingar.is

Skráningu lýkur 25 september.