Nýr langtímasamningur við Ljósið undirritaður
2. júní 2026
Skrifað í dag undir nýjan langtímasamning til fjögurra ára um endurhæfingarþjónustu fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein.

Heilbrigðisráðherra, forstjóri Sjúkratrygginga og forsvarsfólk Ljóssins skrifuðu í dag undir nýjan langtímasamning til fjögurra ára um endurhæfingarþjónustu fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein. Árið 2020 var skrifað undir fjögurra ára þjónustusamning við Ljósið sem gilti til ársloka 2023. Frá þeim tíma hefur ekki verið í gildi langtímasamningur við Ljósið en með nýja samningnum er þjónustan tryggð til fjögurra ára.
,,Það er einstaklega ánægjulegt að skrifa undir langtímasamning við Ljósið. Virði þeirrar þjónustu sem veitt er í Ljósinu hefur fyrir löngu síðan sannað sig. Árangurinn er góður og ánægja með þjónustuna meðal skjólstæðinga Ljóssins er mikil. Rekstur Ljóssins hefur ekki verið nægilega fyrirsjáanlegur undanfarin ár en nú hefur nægjanlegt fjármagn til Ljóssins verið tryggt og því loks mögulegt að gera langtímasamning um þjónustuna.“ segir Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra.

,,Það er mikið fagnaðarefni að langtímasamningur hafi náðst við Ljósið. Með samningnum er tryggð mikilvægt öryggi og fyrirsjáanleiki fyrir starfsemi sem hefur skipt þúsundir einstaklinga og fjölskyldur þeirra miklu máli á erfiðum tímum. Samningurinn styður jafnframt við áframhaldandi þróun þjónustunnar og aukið aðgengi um land allt.“ segir Sigurður H. Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga.

Hámarksfjárhæð samningsins er rúmar 487 milljónir króna á ári. Um er að ræða þverfaglega og heildstæða endurhæfingarþjónustu á endurhæfingarstigum III og IV sem sérstaklega hefur verið aðlöguð að þörfum krabbameinsgreindra einstaklinga. Samningurinn byggir á blöndu af föstum greiðslum og greiðslum fyrir unnin verk samkvæmt gjaldskrá og leggur jafnframt ríka áherslu á gæði þjónustunnar og markvissa eftirfylgni. Endurhæfingarþjónusta Ljóssins verður skjólstæðingum áfram að kostnaðarlausu.
Í nýjum samningi er sérstök áhersla lögð á að efla aðgengi einstaklinga á landsbyggðinni að sérhæfðri endurhæfingarþjónustu, meðal annars með aukinni fjarþjónustu og fræðslu til heilbrigðisstarfsfólks í heimabyggð.
„Við í Ljósinu erum afar þakklát heilbrigðisráðherra og fjárlaganefnd fyrir þann mikilvæga stuðning sem felst í þessum nýja langtímasamningi. Það skiptir okkur miklu að virði þeirrar þjónustu sem hefur verið byggð upp í Ljósinu síðustu tuttugu ár sé metin að verðleikum. Með samningnum er fest í sessi sú heilbrigðisþjónusta sem hefur ítrekað sýnt fram á mikinn ávinning fyrir þjónustuþega okkar og samfélagið allt. Fjármögnun heilbrigðisþjónustunnar er nú tryggð. Áfram þarf Ljósið að treysta á stuðning almennings og velunnara til að standa undir húsakosti og búnaði sem nauðsynlegur svo við getum haldið áfram að veita þjónustu af sömu gæðum.“ segir Erna Magnúsdóttir stofnandi og framkvæmdastýra Ljóssins.
Samningurinn tekur mið af aukningu í krabbameinsgreiningum samkvæmt spá Krabbameinsfélags Íslands um þróun nýgengis krabbameina á komandi árum. Gert er ráð fyrir að á bilinu 550 til 650 einstaklingar innritist árlega í þjónustu Ljóssins á samningstímanum.
