Fara beint í efnið
Sjúkratryggingar Forsíða
Sjúkratryggingar Forsíða

Sjúkratryggingar

Greiðsluþátttaka miðast við ráðlagðan hámarksskammt

24. apríl 2026

Greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga miðast við ráðlagðan hámarksskammt

Greiðsluþátttaka ákveðinna lyfja miðast við ráðlagðan hámarksskammt samkvæmt markaðsleyfi lyfs hér á landi, eftir atvikum verður líka stuðst við viðurkenndar klínískar leiðbeiningar. Eftir breytingu er ekki greiðsluþátttaka á þeim skammti sem er umfram ráðlagðan hámarksskammt. Nýja fyrirkomulag tók gildi 1. janúar 2026. Lyfjanotkun sem er grundvöllur mats á því hvort hámarksskammti hafi verið náð reiknast frá þeim tíma. Í apríl 2026 hættir greiðsluþátttaka í þeim hluta sem er umfram ráðlagðan hámarksskammt. Ef notkun er samkvæmt ráðlögðum hámarksskammti þá fæst greiðsluþátttaka skv. greiðsluþátttökukerfinu en ef notkun er yfir hámarsskammti þá fæst ekki greiðsluþátttaka í þeim skammti sem er umfram.

Breytingin er í samræmi við 6. gr. reglugerðar nr. 1143/2019 um greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga í lyfjakostnaði, þar sem segir meðal annars:

„Sjúkratryggingastofnuninni er heimilt að takmarka greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í lyfjakostnaði einstaklings, sem hefur verið samþykkt skv. 2. tölul. 2. mgr. 66. gr. lyfjalaga, við ákveðna skammtastærð sem fer umfram ráðlagðan hámarksskammt samkvæmt markaðsleyfi lyfsins hér á landi."

[11.12.25 Fréttin hefur verið uppfærð] Nánari upplýsingar um breytinguna má finna hér:

[Fréttin var endurbirt og uppfærð 24.04.26]