Kynntu áhættustýringu Sjúkratrygginga á vettvangi EHFCN
6. mars 2026
Samstarf á alþjóðavettvangi eflt

Áhættustjóri Sjúkratrygginga, Katrín Loftsdóttir, tók í dag þátt í vefráðstefnu hjá EHFCN (European Healthcare Fraud & Corruption Network) þar sem hún fór yfir það hvernig stofnunin hefur byggt upp markvissa áhættustýringu í starfsemi sinni. Í erindinu var fjallað um hvernig áskoranir í rekstri urðu hvati að því að efla áhættustýringu, öryggis- og gæðamenningu innan Sjúkratrygginga. Þá var farið yfir hvernig skipuleg greining á veikleikum í samningum, verkefnum, verklagi og upplýsingakerfum hefur leitt til umbóta í starfseminni.
Sjúkratryggingar eru að innleiða heildrænan áhættustýringarramma sem byggir á reglulegu áhættumati, mótvægisaðgerðum, eftirfylgni og reglubundinni skýrslugjöf. Meðal þeirra umbóta sem þegar hafa verið innleiddar er kerfisbundið áhættumat á veikleikum sem bent hefur verið á í úttektum Ríkisendurskoðunar, stafrænt ábendingakerfi, innleiðing ISO 27001, aukið gagnadrifið eftirlit til viðbótar við þátttöku Sjúkratrygginga í EHFCN.
Kynningin vakti góð viðbrögð og skapaði vettvang til að miðla reynslu af uppbyggingu áhættustýringar í heilbrigðiskerfinu. Heilbrigðiskerfi víða um heim standa frammi fyrir aukinni svikaáhættu og því mikilvægt að byggja upp öflug viðbrögð, læra af reynslu annarra landa og efla samstarf á alþjóðavettvangi.
Sjúkratryggingar munu áfram leggja áherslu á að efla áhættustýringu og gagnadrifið eftirlit til að tryggja trausta og ábyrga meðferð opinbers fjár.
