Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Sjúkratryggingar Forsíða
Sjúkratryggingar Forsíða

Sjúkratryggingar

Sjúkratryggingar hástökkvarar ársins!

16. febrúar 2026

Þjónustukönnun ríkisins

Þjónustukönnun ríkisins er gerð á hverju ári og niðurstöður fyrir árið 2025 liggja fyrir. Sjúkratryggingar eru í hópi hástökkvara ársins.

Ánægja með þjónustu Sjúkratrygginga mælist 3,4 árið 2025 en mældist 2,9 árið áður. Þá fer ánægja með hraða í þjónustu úr 2,5 í 3,0 og reynsla af viðmóti starfsfólks fer úr 3,4 í 4,0. Ánægja með þjónustu Sjúkratrygginga eykst í öllum þeim flokkum sem mældir eru hjá stofnuninni.

Mælt var viðhorf til þjónustu 63 stofnana og byggjast niðurstöðurnar á um 140.000 svörum sem bárust á síðasta ári. Almennt eru 86% ánægð eða mjög ánægð með þjónustu ríkisstofnana, samkvæmt þessari nýjustu þjónustukönnun ríkisins. Alls ná 23 stofnanir þeim áfanga að vera með einkunnina 4,2 eða meira í ánægju með þjónustu. Almennt er talað um að einkunn sem er 4,2 eða hærri sé á svokölluðu styrkleikabili sem er mælikvarði um mikil gæði í starfsemi.